Kæra Guðrún
Ég hef verið með exem frá því ég man eftir mér, hef verið hjá
húðlæknum í gegnum árin, fengið sterakrem til að meðhöndla en ekkert hefur virkað, mér hefur stundum dottið í hug að leita til Hómopata en er ekki alveg viss hvort að það sé leið sem gæti hjálpað mér. Getur þú sagt mér hvort að sú leið gæti verið árangursrík og hvers vegna?
Með fyrirfram þökk
Ein með exem
Sæl og takk fyrir fyrirspurnina.
Margir eru ekki ánægðir með aukaverkanir og hlutfall bata af steralyfjum og eru í auknum mæli að færa sig yfir í náttúrlegar lausnir.
Hér eru nokkrar ábendingar sem geta hjálpað þér að stjórna exemi á náttúrulegan hátt.
Einkenni Exems er bólga í húð, rauð útbrot, litlar blöðrur, sprungur og blæðingar, húð þykknar og þessu fylgir mikill kláði. Algengustu svæðin eru í hársverði og hárlínu, bak við eyru, olnbogabótum, hnésbótum og í nára. Að klóra sér, getur valdið sýkingu og graftar myndun.
Hómópatía telur húð-sjúkdóma að vera hluta af miklu stærra mynstri. þar sem líkaminn reynir alltaf að tjá sig er ekki gott að bæla exem, það er svipað og að blása á gufu, við viljum koma í veg fyrir sjúkdómar birtist í dýpri vefum og líffærum. þannig að bæling á exemi með sterum eða bólgueyðandi lyfjum er oft hægt að rekja til áhrifa sem kunna að byrtast mörgum árum síðar í formi langvarandi sjúkdóma. Allt uppundir 50% einstaklinga fá asma og heymæði seinna á ævinni.
Ég hvet skjólstæðinga mina til að borða í heild eins góða fæðu og hægt er. Ef mögulegt er ættu þeir að borða minna mjólkurvörum, sykri og steiktum mat. Krydd getur líka gert exem enn verra þar sem það hitar blóðið.. Þeir ættu að drekka að minnsta kosti tvo lítra af vatni á dag. Mikilvægt er að taka inn góðar fitusýrur og draga verulega úr sykurneyslu. Hafragrautur er tilvalinn morgunmatur fyrir þá sem að hafa exem.
Forðast skal að nota sterk þvottaefni og krem sem gætu ert húðina. Haframjöl er mjög róandi fyriri húðina í baðið, og hjálpar til að mýkja húðina. Settu einn bolla af haframjöli í sokk sem þú bindur fyrir og setur útí baðvatnið. Calendula krem hefur reynst vel, en einnig er gott að bera kókosolíu á eftir bað og er þá gott að bera hana kalda á húðina.
Hómópataremedíur.
Mundu að exem getur verið erfitt ástand til meðferðar og til að ná tilætluðum árangri mæli ég eindregið með að þú panntir þér tíma í ítarlegt viðtal hjá útlærðum hómópata. Það fer alltaf eftir einstaklingnum hvaða remedía er notuð hverju sinni. Hér fyrir neðan er listi ÖRFÁRRA remedía sem gæti gagnast.
Arsenicum - Ákafur kláði. Bruna tilfinning þegar klórað er. Húðin er þurr og skorpukennd. Kulsækinn, vill kalt vatn. Hefur áhyggjur af heilsu. Verri; eftir miðnætti, við kulda og að vera blautur. Betri; í heitu herbergi og heitu baði.
Graphites – Þurr þykk húð og sprungin, lekur úr útbrotum oft hunangslitaður vökvi.
sár mjög lengi að gróa. Skjólstæðingur oft í yfirvigt og þjáist einnig af hægðartregðu.
Útbrot oft í hársverði, bakvið eyru, í lófum og á kynfærum.
Djúpar sprungur á fingrum, hælum osfrv neglur þykkar.
Verri; að nóttu, í kringum blæðingar, sætindi og í hita (samt með hroll) Betri; við kulda og eftir svefn.
Nat mur - litlar kláða þynnur með ætandi vökva, húð verður rauð, hrá og bólgin.
Í hársverði, olnboga- og hnésbótum, á bak við eyrun.
Sækir mjög í salt, er þyrstur. Fitugt hár. Þurr húð almennt.
Exem eftir að hafa bælt tilfinningar, innri sorg. Forðast huggun og læti.
Verri; hita, salt, ströndina, blæðingar. Betri: svalt veður og baða sig.
Petroleum – Húð er rauð hrá, rakt yfirborð, bruni og kláði, mikill kláði.
sprungur í lófunum, fingurgómum, olnboga- og hnésbótum, bakvið eyru, og á kynfærum. Klórar þar til blæðir. Verður að hluta kalt eftir að klóra.
Verru; vetur, kalt loft, nótt. Betri; hlýtt loft, þurrt veður.
Sulphur - Útbrot eru þurr og flagnandi. Ákafur kláði, klóra þar til blæðir.
Brennandi heitir fætur á nóttunni. Hársvörður, andlit, svæði sem svitna, fætur, olnboga- og hnésbætur.
Daufur, þreyttur og alltaf svangur.
Verri: morgnana, hita í rúminu, hita, böð, ull. Betri; þurrkur, kaldir bakstrar, sumrin.
Hepar- Lekur úr útbrotum, sýking, ofurviðkvæmni, verri við kulda og á morgnana. Betri við hita og heita bakstra.
Silica- Lekur úr útbrotum og sýking. Verri í kulda og vindi. Betri við hita, í heitu veðri.
Calc Carb - Húðin er þvöl, verri við kulda og vind, verri við álag og oft verri við mjólk og mjólkurvörur. Betri við hita og á morgnana. Harðlífi fylgir oft.
Með Kveðju
Guðrún Ösp hómópati
Endilega hikaðu ekki við að hafa samband við mig, ef þú vilt fá tíma eða nánari ráðgjöf.
gosp@heilsukjarninn.is
www.Heilsukjarninn.is
s:8200800