Eyrnabólga og hómópatía

Sæl Guðrún

Mig langaði að spyrja þig um eyrnabólgu hjá börnum. Ég er með eina 3ja ára stelpu sem er búin að vera með í eyrunum frá því að hún fæddist. Hún er búin að fá rör í eyrun tvisvar sinnum og farið 2-3 sinnum á pensilín. Rörin detta út og við viljum helst nota sem minnst af pensilíni.

Lumar þú á einhverju góðu ráði varðandi eyrnabólgu án þess að þurfa notast við pensilín?

Kærar þakkir
kveðja
Sigurlaug



Eitt það erfiðasta sem foreldrar gera, er að horfa uppá barn sitt þjást og geta ekki hjálpað.
Ef barnið þitt hefur síendurteknar sýkingar í eyrum, þér finnst þér þú líklega hjálparvana. Algengasta ástæða þess að foreldrar fara með börn sín til læknis er vegna sýkinga í eyrum. Eyrnabólga er bólga í miðeyra, oftast vegna gerla- eða veirusíkingar. Eyrnabólga getur orðið mjög alvarleg og oft hafa læknar talið eina ráðið vera sýklalyf. Ef sýklalyf eru notuð í miklum mæli geta þauskaðað eyrun. Því er æskilegra að reyna aðrar leiðir.

Hvað virkar þá?
Einn möguleiki af mörgum er hómópatía. Það er frábrugðið hefðbundnu heilbrigðisþjónustu að því leiti að það er ekki lögð áhersla á að meðhöndla hverja eyrna sýkingu sérstaklega, heldur litið á barnið sem hefur mynstur eyrna sýkinga og vinnur að því að stöðva mynstrið. Það gerir það að verkum að það er ekki meðhöndla eyrna sýkinguna sem sérstakt vandamál, í stað þess er barnið meðhöndla sem ein heild. Barnið sem hefur eyrna sýkingu hefur sennilega einnig önnur líkamleg vandamál og ef til vill einhver tilfinningaleg. Það hafa allir ákveðna tegund af persónuleika, mislíka eitt og líkar annað og ýmislegt sem gerir þá að einstakri persónu. Allar þessar upplýsingar hjálpa okkur að velja rétta remdíu sem samsvarar öllu mynstur einkenna. Þessi rétta remedía vinnur að því að efla heilbrigði barnsins. Um leið og heilsa barns styrkist , mun eyrna sýking og önnur vandamál hverfa. Ólíkt hefðbundnum læknisþjónustu, er fyrsta viðtal hjá hómópata nógu langt (1-2 klst) til þess að hægt sé að kanna öll helstu einkenni hvers einstaklings. Mynstrið hvernig þessi einkenni passa saman, er miðað við mynstur í hverri og einni af 5000 remedíum. Við munum velja remedíu sem mun koma barninu aftur í jafnvægi og leyfa líkamanum að lækna sig sjálfur. Rétt lækning mun draga fram aukna heilsu og vellíðan. Hómópatískar remedíur eru náttúrulegar, öruggar, og framkalla ekki neihvæðar aukaverkanir.
Gagnlegar ábendingar um mataræði: Forðastu mjólkurvörur (mjólk, smjör, ost, jógúrt…) og sykur á meðan sýkingar er vart í eyrum. Þær hækka slímframleiðslu í líkamanum.
Einföld eyrnabólga mun almennt líða hjá innan 24 klukkustunda, en ef viðvarandi, skaltu leita faglega aðstoð. Ekki tefja meðferð, sérstaklega ekki hjá börnum!

Við skulum nú sjá úrræði heimilana fyrir sýkingu í eyra:
Einfaldasta, öruggasta lækningin reynist oft finnast í eldhúsum okkar allra:

Rauðlaukur
1. Britjið hálfan lauk í litla bita og setjið inní bómullarsokk.
2. Hitið hann upp t.d. með hárblásara í líkamshita.
3. Settu sokkinn upp að opi eyrans.
4. Festu sokkinn með því að setja húfu eða trefil á höfuð barnsins. (Aðeins skal nota náttúruleg efni, eins og bómull, ull, hör eða silki.)
5. Láttu lyggja á í u.þ.b. 30 mínútur (eftir persónulegum þolmörkum) og endurtaka þetta 2-3 sinnum á dag (en alltaf skera nýjan, ferskur laukur.)

Eins daunill og lyktin er þá er þetta mjög árangusríkt. Þetta getur tekist á við alvarlega eyrna verk og byrjunarstig í mið eyra sýkingu.
Annar góður, en illa liktandi kostur er:

Hvítlauks dropar
1. Settu dropa af volgri hvítlauksolíu í bómull. Komdu honum fyrir eins og tappa í eyrna opinu. Það er hægt að taka olíu úr hvítlauksbelgjum eða kreista hvítlauk saman við olífu olíu.
2. Láttu þetta lyggja á í um 30-40 mínútur í eyranu og endurtaktu nokkrum sinnum á dag.
Þetta getur verið eins árangursríkt og lauksokkurinn og gagnlegt fyrir ytri eyra sýkingum.
Ef kláði, brennandi erting eða hvers konar óþægindum fjarlægið Olíu bómull þá strax. Þú getur búið þér til þína eigin olíu. Taktu einn hvítlauk og maukaðu saman við 1 dl af olíu í pott. Hitið rólega þar til fer að sjóða og takið þá af og látið kólna í 10 mín. Þú getur notað þessa olíu á salatið þitt líka, það er mjög ljúffengt.

Hér eru nefndar nokkrar af þeim remedíum sem reynst hafa vel við eyrnabólgum:

• Kali Mur 6X, er vefjaslat salt, sem hægt er að taka ásamt öðrum úrræðum. Það hjálpar við að leysa upp slím svo að það geti almennilega skilað sér frá eyra, nefi, lungum eða hálsi.

• Belladonna er góð fyrir fólk sem hefur mikinn sársauka í eyra og oft fylgir hiti með. Andlit þeirra verða oft rauð og augun glansandi. Þeir hafa mikinn eyrna verk sem stundum fylgir höfuðverkur. Þessir verkir eru verri við hreyfingu, á nóttuni, liggjandi og ef tekin er af sængin. Þeir líða betur með öðrum, sitja uppi og við yl.

• Pulsatilla er frábært barna remedía. Þessir krakkar geta verið feimin og gráta auðveldlega. Oft breytilegir verkir, td annað eyrað sárt, svo hitt, eru með höfuðverk og svo er hann horfinn. Þeir eru mjög lítið þyrstir, jafnvel með hita. Þeir líður miklu betur við huggun. Þeim líður verr í loftlausu herbergi og vilja opna glugga. Þeir vilja kalt loft, kalt herbergi og huggun.

• Chamomilla er önnur mikilvæg remedía í eyrna vek. Oft kemur þessi verkur fram við tanntöku. Þeir geta verið mjög pirraðir, og róast aðeins þegar haldið er á þeim. Það er svipað pulsatilla, hins vegar er meiri reiði í chamomilla. Þeir geta verið með eina rauða kinn. Þeir líður verr við hita, fyrir miðnætti, og í vindi.

• Aconitum er yfirleitt gefið á fyrstu 48 klst eyrnaverk ef sársauki er stingandi verkur, ef vandamálið byrjaði eftir að vera í kulda, og ef barnið er áberandi þyrstara. Venjulega er fylgir hiti eyrna sýkinguni, þurr hósti og stíflað nef. Barnið getur verið órólegt, ákaft. Er verri við hávaða, tónlist.

• Calcarea carbonica Verkur kemur oft eftir að hafa orðið kalt. Höfuð er heitt (svitnar), en líkami kaldur. Súr lykt af svita og hægðum. Oft fylgir hálsbóla og bólgnir eitlar. Harðlífi getur fylgt. Hamrandi verkur í eyra. Útskilnaður þykkur, gulur og illa lyktandi. Hafa mikla löngun í egg og sælgæti
Er verri við allt kalt nema vill kalt að drekka.

• Hepar sulphuris Eyra er mjög viðkvæmt fyrir snertingu, kulda, vindi og hávaða. Stingandi verkur og útskilnaður er illa lyktandi (getur verið bæði úr nefi og eyrum). Sjúklingur er pirraður og tekur köst. Oft fylgir þurr hósti. Er betri við hita og heita bakstra. Verkur leiðir oft niður í háls. Eru verri á kvöldin.

• Mercurius er oftast gefið í síendurteknum tilfellum eða eftir inntöku sýklalyfja. Útskilnaður er brennandi, límkenndur, grænn/gulur og illa lyktandi. Sláttaverkur og sónn í eyra. Verkur leiðir frá hálsi og upp í eyra. Margskonar verkir. Sár háls, bólgnir kirtlar, andfýla. Oft útbrot bak við eyrun. Slefar og svitnar mikið með vondri likt. Er veikburða og skelfur. Oft er augnsýking hjá þessum börnum líka.
Er verri á nóttunni, í heitu rúmi, við heita og kalda bakstrar. Líður betur eftir að snýta sér.

• Allium Cepa þegar eyrnasýking er með kvefi. Hor er brennandi og vatnskennt. Sár háls með verk sem leiðir út í eyru. Líður verr í heitu herbergi. Er betri á kvöldin og úti við.

• Ferrum Phos svipar til Aconite og Belladonna, nema kemur hægar og ekki eins alvarlegt. Gefið á fyrsta stigi bólgu. Oftast er bólgan vinstra megin. Finnst eins og hávaði sé í eyranu. Fölar eða rauðar kinnar, svitnar og er þyrstur eins og Bell. Getur fylgt viðkvæmni í stikilbeini. Útskilnaður blóðlitaður.

• Lycopodium byrjar í eða er verra í hægra eyra og fer síðan yfir í vinstra eyra. Finnst eyrað vera fullt eða stíflað og stundum er suð eða hringing í eyranu. Útskilnaður er þykkur, gulur og brennandi. Oft fylgja meltingarvandamál. Sjúklingur er kvíðinn, óöruggur og vill hafa einhvern hjá sér. Hræddur við allt nýtt og hefur áhyggjur af áliti annarra. Er verri kl. 16-20, við kalt loft og dragsúg, við að liggja á hægri hlið.

• Causticum eyrnaverkur kemur eftir dagsúg, en er ekki eins bráður og Aconite verkur.

• Silica verkur kemur hægt. Sjúklingur er veikburða og fær oft eyrnaverki. Bólga í stikilbeini (á bak við eyra), útskilnaður er vatnskenndur og illa lyktandi. Er viðkvæmur fyrir hávaða. Pulsatilla er oft gefið á undan Silica.

• Mag.Phos þegar er skyndilegur taugaverkur í eyranu, mjög skarpur verkur. Getur haft áhrif á stikilbein. Verkur er oftar hægra megin, er verri á nóttunni og í köldu lofti, en betri við hita og þrýsting.

• Capsicum: Líkist Pulsatilla og Chamomilla. Eyra er viðkvæmt og rautt. Sjúklingur er skapvondur og andlit rósrautt. Vill vera einn (í einrúmi). Stikilbein bólgið (bak við eyra).

• Calc. Sulph.: Líkist Hepar Sulph. en ekki eins viðkvæm fyrir snertingu. Útskilnaður lekur úr eyra.

• Lachesis: Líkt Merc. Útskilnaður illa lyktandi. Er verri við hita, við snertingu og eftir svefn. Oftast vinstra megin.


Talað er um ef um bráðan eyrnaverk hægra megin sé að ræða þá slái Bell. oftast á verkinn, en ef verkur er vinstra megin þá slái Ferr. Phos. oftast á verkinn. Þegar eyrnabólgan kemur ekki mjög akút dugar Puls. oftast, sérstaklega hjá börnum.

Endilega hikaðu ekki við að hafa samband við mig, ef þú vilt fá tíma eða nánari ráðgjöf.

Guðrún Ösp hómópati

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning