Andleg heilun styrkir
samband sálar og líkama. Heilun fylgir djúp slökun, sem er nauðsynleg öllum. Margir vinna krefjandi störf undir miklu álagi og í
slíkum tilfellum getur heilun hjálpað til að slaka á, bæði andlega og líkamlega. Þannig losnar um uppsafnaða streitu, léttir á
kvíða og áhyggjum.
Heilarinn tengir sig inn á þá orku, sem viðkomandi þarf og er tilbúinn að meðtaka. Orkan lýsir upp líkamann og sérstaklega
þá staði í líkamanum sem eru veikir fyrir. Orkan fer einnig inn í tilfinningarnar, róar þær og heilar eftir atvikum.
Heilun byrjar með því að viðkomandi ræðir við heilarann um hvað hann/hún vill taka fyrir í heilununni. Þá er lagst á
bekk og meðferðaraðilinn heldur höndum yfir og á líkama viðkomandi, misjafnt er hversu mikið hver og einn finnur fyrir orku sem umlíkur hann, en
oftast finnur fólk fyrir hita eða straum um líkamann þó er djúp slökun það sem er sterkast.
60 mín. 5000 kr

