Hestar og hómópatía

sæl Guðrún.  
ég er mikil hestakona og bjó í Þýskalandi í mörg
ár, þar voru alltaf notaðar remedíur fyrir hestana með mjög góðum árangri.
Er verið að nota remedíur fyrir hesta á íslandi?  ef svo er er þá hægt að
kaupa svona 1. hjálpar kassa eins og eru erlendis?
kveðja Ásta

Sæl Ásta og takk fyrir fyrirspurnina.

Já það er mikil vakning meðal hestamanna á íslandi að nota nátturlegar
lækningar.  Hestarnir eru eins og við mannfólkið mjög mismunandi og lang
best er að ráðleggja sig við hómópata ef um alvarleg meiðsl eða andleg
líðan er að ræða.

Hestar og hómópatía

Hesta remedíu-boxið er hægt að nota á öruggan hátt við eftirfarandi
einkennum.

Remedía #1 í slysum og áföllum er ARNICA 1M fyrir bæði hestinn og knapann

Slys, Áverkar, Áföll --- Arnica, Aconite
Hræðsla, panic --- Aconite
Kvíði --- Arsenicum, Aconite, Nux vomica
Bólgur --- Hepar sulphuricus
Sár --- Arnica, hypericum, Hepar
Áverkar: taugar, hrygg --- Hypericum
Áverkar: sinar --- Arnica,Ruta, Rhus toxicodendron
Bólgnir liðir --- Rhus toxicodendron, Ruta
Gigt --- Rhus toxicodendron
Belgbólga --- Ruta graveolens
Tognun --- Arnica,Ruta, Rhus toxicodendron
Ringbone --- Arnica, Ruta graveolens
Býta og slá --- Stram
Magakrampi --- Arsenicum, Colocynthus, Nux vomica
Meltingarf, án matarlist --- Arsenicum, Colocynthus, Nux vomica
Sár í meltingarvegi --- Arsenicum, Nux vomica, Aconite
Vörtur --- Thuja
Klór, sveppur --- Thuja
Einkenni eftir bólusetningar --- Thuja

“Það ætti að vera til remedíu-box í öllum hesthúsum og hestakerrum”

Hér að ofan eru nokkrar af helstu hómópatísku remedíunum sem að hafa
gagnast vel vegna algengustu kvilla hrossa, en tekið skal fram að ávallt
er heillavænlegast að leita sér aðstoðar hjá reyndum hómópata, til að auka
líkur á að rétt remedía sé valin:

Með Kveðju
Guðrún Ösp hómópati

Endilega hikaðu ekki við að hafa samband við mig, ef þú vilt fá tíma eða
nánari ráðgjöf.
gosp@heilsukjarninn.is
www.Heilsukjarninn.is
s:8200800

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning