Hómópatía

homeopathicrem_01Hómópatía er heildræn meðferð. Hver manneskja er meðhöndluð á einstaklingsbundinn hátt og er unnið að því að virkja lækningamátt eigin líkama. Hómópatía er meðferð sem byggist á reglunni um að ,,líkt lækni líkt". Það felur í sér að efni sem framkallar sjúkdómseinkenni í heilbrigðum einstaklingi getur læknað sömu einkenni í sjúkum einstaklingi. Efnin eru mikið þynnt þannig að í raun er ekki lengur talað um þau sem eiginleg efni heldur hvata.

Meðferð hjá hómópata byggist á viðtölum þar sem einstaklingurinn greinir frá líkamlegu, andlegu og tilfinningalegu ástandi sínu. Þannig er leitast við að kortleggja einstaklinginn til að finna remedíu(r) sem gagnast við að koma jafnvægi á orkukerfi hans. Sjúkdómar myndast þegar orkukerfið er í ójafnvægi en það getur stafað af ýmsum orsökum.

Remedíur eru heiti yfir hvatana eða örefnin sem Hómópatar nota til meðferðar. Þær eru unnar úr jurta-, dýra- og steinaríkinu. Remedíur eru með öllu skaðlausar og valda ekki aukaverkunum

Viðtal hjá hómópata

Meðferð hjá hómópata byggist á viðtölum þar sem leitast er við að fá sem skýrasta mynd af einstaklingnum frá ýmsum sjónarhornum. Fyrsta viðtal hjá hómópata tekur um 60-90 mín.  Farið er mjög nákvæmlega yfir líkamleg, andleg og tilfinningarleg einkenni og byggist hin hómópatíska meðferð á þeim upplýsingum sem þá liggja fyrir. Lengd meðferðar er jafn breytileg og einstaklingarnir eru margir. Þó má segja að því lengur sem veikindin hafa varað því lengri tíma megi búast við að meðferðin taki.

Helsti kostur hómópatíunnar, eins og svo margra óhefðbundinna meðferðarforma, er að hægt er að stuðla að betri líðan jafnvel þótt einkenni séu ekki vel skilgreind eða falli ekki undir tiltekinn sjúkdóm. Ekki þarf heldur að bíða eftir því að einkenni verði sýnileg því viðtal hjá hómópata getur leitt í ljós veikleika sem komið gætu fram síðar. Hómópatísk meðferð getur því styrkt viðkomandi og dregið úr líkum á veikindum síðar meir.

Sem dæmi um spurningar sem hómópati þinn mun leggja fyrir þig má nefna:
img_4623_640

• Hvað hræðir þig?
• Hvernig ertu skapi farin(n)?
• Hvað vekur hjá þér kvíða?
• Hvaða tilfinningar eru ríkjandi hjá þér dagsdaglega?
• Í hvernig landslagi líður þér best?
• Í hvernig veðurfari líður þér best?

• Í hvernig stellingu finnst þér best að sofa?
• Svitnarðu mikið-lítið?
• Ertu heitfeng(ur) þyrst(ur)
• Hvað gerir þín einkenni betri eða verri.
• Hvernig mat langar þig oftast í?

Allar þessar spurningar miða að því að fá sem nákvæmasta mynd af einstaklingnum. Þess vegna er mjög líklegt að einstaklingar með sömu sjúkdómsgreiningu fái mismunandi meðferð. Meðferðin miðast alltaf að því að koma á jafnvægi lífsorkunnar.
Það að vera ekki alveg eins og maður á að sér, orkan lítil og tilfinningar frekar daufar er oft merki um að lífsorkan sé í ójafnvægi.
Best er að leitast við að koma á jafnvægi áður en ójafnvægi myndast. Því má segja að hægt sé að nota hómópatíu í fyrirbyggjandi tilgangi.
 Á sama hátt er hægt að styrkja grunngerð einstaklingsins svo veikleikar sýni sig síður en þá verður viðkomandi að vera vakandi yfir líðan sinni.

Hverjum hentar hómópatía?
Allir, ungir sem aldnir, sjúkir sem heilbrigðir geta nýtt sér hómópatíu.

Einnig hentar hómópatía öllum dýrum og hef ég persónulega góðan árangur af því.

 

Fyrsta viðtal              7.000 kr.

Endurkoma                5.000 kr.

Mörg stéttarfélög niðurgreiða heimsókn til hómópata. Kannaðu hvernig niðurgreiðslum er háttað hjá þínu stéttarfélagi.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning