Í Heilsukjarnanum verður í boði mismunandi námskeið en eins og allir vita þá er það líkamanum og sálinni nauðsyn að
hreyfa sig og ná í ferskt loft og munum við leitast við að hafa sem allra flesta tíma undir berum himni. Það fer eftir árstíð og
þátttöku hvað verður í boði hverju sinni. Meginatriðið er að fólk kynni sér hreyfingu sem hentar og njóti þess að
vera í skemmtilegum félagsskap.
Stafganga
Gengið er með stafi til að virkja enn betur efri hluta líkamans í kraftgöngu. Fyrir þá sem þess þurfa þá veita líka
stafirnir stuðning og dreifa álaginu á fleiri liði líkamans.
Sund
Rifjuð er upp eða læra frá grunni sundtökin og æfð. Synt er eftir fjölbreyttum áætlunum og byggt upp stig af stigi.
Boltaíþróttir, þrek og leikfimi
Fyrir þá sem vilja fá útrás og spila bandy, blak og jafnvel fótbolta og körfubolta. Í bland við það verður í
boði þrek og leikfimitímar.

