Slökun, heilun og nudd í innisundlauginni
Í innilaug Sundlaugar Akureyrar bjóðum við upp á dásamlega dekur- og kyrrðarstund. Einstaklingar liggja og fljóta í vatninu með aðstoð korka, Nuddari og heilari ganga á milli, heila, nudda höfuð eða fætur. Hvað getur það verið notalegra?
Slökun í vatni kostar 1500 kr. Innifalinn er aðgangur ofan í laugina. Látið vita í afgreiðslunni að þið séuð að fara í slökun og hittið okkur svo niðri í laug.

